Auglýsing

Afmćli

25. október 2007 klukkan 22:23

Alexander hélt upp á afmælið sitt í dag, svaka stuð á Mamma Mía og svo smá kaffi og kökur heima um kvöldið.  Heppnaðist allt mjög vel og allir sáttir.  Ætla að reyna að henda inn nokkrum myndum af herlegheitunum.  Herbergið hans allt fullt af nýju dóti, þó aðallega að utan þar sem hann fékk ellefu pakka frá mömmu sinni.  Hann er alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman, eins og ég sagði allt fullt af nýju dóti og 8500 krónum ríkari :)  Ég er aðallega fegin að þessu sé öllu lokið og verður ekki aftur fyrr en eftir ár.. :)

Kveðja

Marteinn Guđjónsson
5 athugasemdir

15. október 2007 klukkan 22:00
Er alltaf á leiðinni að fara setja inn fleiri myndir..nenni því ekki núna en þær koma.  Ætla ekki að setja einhver tímamörk á það því ég fæ það í hausinn aftur þar sem ég er svosem ekkert mjög frægur fyrir að vera á tíma með hlutina.  En annars var að lesa pistil eftir hann Steina vin minn, helvíti góður.  Hann er askoti sniðugur, hann bloggar bara einu sinni á ári og hefur þá frá svo mörgu að segja.  En eins og ég akkúrat núna hef ekki frá neinu að segja svo ég skrifa bara eitthvað..sniðugt :)

Svo er afmæli um helgina.  Alexander verður 8 núna á þriðjudaginn 23. og við ætlum að halda veislu á laugardaginn.  Síðustu ár hef ég verið að reyna að baka sjálfur..fara svosem engar frægðar sögur af útkomunni en það reddaðist þó.  En núna höfum við ákveðið að reyna að fá aðra í þetta og þá kannski hafa alvöru afmælisköku ekki einhvern skreyttann skósóla með 8 kertum.  En þetta verður ábyggilega rosa stuð, fullt hús af brjáluðum gargandi krökkum..nei nei segi bara svona :)

Fórum á landsleikinn á sunnudaginn, Ísland - Lettland.  Skrítið með þessi íslensku landslið, hvort sem það er í fótbolta eða handbolta, það kemur alltaf einhver svona "dauðakafli" í leikjunum, einhver kafli þar sem allt dettur niður, enginn getur neitt og allt klikkar.  Þeir fengu þrjú mörk á sig á einhverjum 25 mínútum í fyrri hálfleik og leikurinn bara búinn.  Annars var þetta nú enginn lúxus knattspyrna svona á þessum landsleikja level en það er nú alltaf gaman að fara á landsleik þannig að þetta var allt í lagi.  Fyrsti landsleikurinn sem Alexander fer á og hafði hann bara gaman af held ég, við misstum reyndar af báðum mörkunum sem Ísland skoraði þar sem fyrra markið kom það snemma að við vorum ekki mættir (story of my life) og svo misstum við af því seinna því sumir þurftu að fara á klósettið og þar á eftir þurfti að kaupa hatt og lúður og fá sér pizzu sneið og svoleiðis, þannig að hun kostaði okkur dágóða stund þessi pissuferð og eitt mark eða svo..:)  En svona heilt yfir bara nokkuð gaman.

Kveð í bili..
Marteinn Guđjónsson
1 athugasemd

Lífiđ á laugardagsmorgni..

06. október 2007 klukkan 10:16
“Laugardagsmorgun 
 Á fætur ég fer
  Höfuðið á mér  
  Þunnt eins og gler”
 

Langaði bara svo að skrifa þetta, textinn er reyndar “Mánudagsmorgun..” og þetta á svosem ekkert við núna..en bara..
 

Jæja laugardagsmorgun, kallinn vaknaður fyrir allar aldir, Lexi ennþá sofandi.  Það var nokkuð rólegt hjá okkur feðgum í gærkvöldi, sofnaðir um 11 leitið.  Askoti notalegt bara..
 

Það er voðalega ljúft að vera í fríi frá æfingum þessa dagana.  Geta farið í grunninn eftir vinnu og reynt að djöflast eitthvað eða jafnvel bara fara heim og gera ekki neitt..það er nú reyndar mjög sjaldan sem það er hægt þar sem einn ungur drengur sér sig yfirleitt knúinn til þess að snúa litla heimilinu okkar við þegar hann kemur heim úr skólanum.  Fær sér að borða og þá helst inní stofu eða það skiptir svosem ekki máli því maturinn á það til að dreifa sér nokkuð vel, leika fram á gangi með ALLA bílana og bílabrautirnar því það er svo mikið meira pláss þar og hægt að gera svo stórar og langar brautir.  Um daginn datt honum í hug að sækja poka sem ég hafði sett barnaföt í sem orðin eru of lítil á hann og auðvitað þurfti að máta það allt saman til þess að vera alveg viss um að ég væri nú ekki að henda einhverju sem hægt væri að nota.  Og af einhverri óskiljanlegri ástæðu þurfti að nota alla íbúðina undir þennan gjörning.  En þetta stendur nú allt til bóta því einhver leiðinlegur kall sem skilur ekki að herbergið hans er ekki nógu stórt fyrir allt dótið hans og það er ekkert alltaf hægt að sitja við eldhúsborðið þegar maður er að fá sér að borða hefur hótað að allt það dót sem er fram á gangi, inní eldhúsi eða stofu þegar hann kemur heim úr vinnu verði hent í ruslið.  Hef ég því fengið loforð fyrir því að það verði leikið sér herberginu hér eftir.  Næsta verkefni er þá þetta með matinn...
 

Ætla að fara í salinn með strákunum núna kl. 11:30 og fara svo uppí grunn, hreinsa timbrið og taka eitthvað til þar.

Kveð í bili.
Marteinn Guđjónsson
2 athugasemdir

Sćtur sigur...

29. september 2007 klukkan 10:51
Síðasti leikurinn á tímabilinu kláraðist í gærkvöldi.  Fórum í Garðabæinn og spiluðum við Stjörnumenn.  Fyrri hálfleikur var alveg hræðilegur að okkar hálfu, þeir sundurspiluðu okkur um allan völl.  Við vorum eins og beljur á svelli, alltaf skrefi eða skrefum á eftir.  Staðan 2-0 í hálfleik Stjörnumönnum í vil og hefðu þeir hæglega getað verið búnir að setja 4-5 mörk á okkur.  

Ótrúlegt hve mikilvægt er að hafa góðan og útsjónarsaman þjálfara.  Í seinni hálfleik breyttum við um taktik, þéttum miðjuna og síðast en ekki síst fórum að bíta frá okkur eins og menn.  Fórum að taka boltann niður og láta hann ganga og ekki leið á löngu þar til við vorum komnir með öll völd á vellinum, fórum að sýna okkar rétta andlit.  Þegar um 12 min voru eftir að leiknum skoruðum við annað markið og jöfnuðum.  Þeir voru farnir að pirra sig á þessu öllu saman og við nýttum okkur það og settum þriðja markið þegar 2 min voru eftir.

Ótrúlega sætur sigur í leik sem í rauninni skipti engu máli þannig séð, því bæði lið búinn að tryggja veru sína í deildinni.  En reyndar var staðan þannig fyrir leikinn að við gátum endað í 6-11 sæti.  Raunin var 8 sætið og erum við bara þokkalega sáttir við það miðað við hvernig komið var.  En að koma til baka eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik og vinna 2-3 er frábær tilfinning, manni líður eins og maður láti ekki vaða yfir sig.....  
Marteinn Guđjónsson
3 athugasemdir

Lćkjamót 93/95

25. september 2007 klukkan 16:50

Jæja þá er nú eitthvað farið að skríða áfram hjá okkur félögunum í byggingabransanum. Vorum í fríi alla síðustu viku frá vinnu til að geta verið aðeins við þetta og gekk það bara nokkuð vel.  Búið að steypa sökkulinn og hreinsa utan af kubbunum að innan og þá er bara að fá þá til að fylla upp í..og á það að gerast í dag, hvað svosem verður.  Þannig að þetta er svona komið aðeins á veg hjá okkur.

Marteinn Guđjónsson
1 athugasemd

Fótbolti

23. september 2007 klukkan 02:37
Nú er gaman að vera til...og vera Njarðvíkingur.  Unnum góðan sigur í dag og tryggðum sætið okkar í fyrstu deildinni fyrir fullt og allt þetta árið. Tókum Fjarðarbyggð nokkuð sannfærandi 3-0.  Ágætis leikur að okkar hálfu, settum þrjú í fyrri hálfleik og héldum svo bara fengnum hlut..eitthvað sem við áttum skilið vil ég meina því við erum með allt of gott lið til að vera í einhverri fallbaráttu..en tek það fram að það er mín skoðun og eru ekki allir sammála því...

Nú er bara að taka Stjörnuna næsta föstudag og ná sjötta sætinu..eitthvað sem stefnt var að í byrjun tímabils.  Verð reyndar að viðurkenna að leiðin að þessu sjötta sæti átti að vera mun átakaminni því takmarkið var að festa sig í sessi sem fyrstu deildar lið en raunin var að við höfum verið í bullandi fallbaráttu undanfarnar vikur, sem þýðir að það er eitthvað sem ekki hefur gengið sem skildi þetta tímabilið.  En nú eru bjartir tímar framundan hjá Njarðvík, fullt að ungum og efnilegum strákum, sem hafa beðið eftir tækifærinu, að koma upp og fá sénsinn á næsta ári..verður þónokkur kynslóðaskipting hef ég trú á, þar sem megnið að liðinu er komin á aldur og þar á meðal ég sjálfur og förum við nú að segja þetta gott af boltanum held ég..orðinn hálf þreyttur á þessu...

þar til næst.
Marteinn Guđjónsson
2 athugasemdir

Sveik lit..

22. september 2007 klukkan 10:07

Ég sveik lit..gat ekki annað, ég varð að færa mig yfir í bloggar.is í staðinn fyrir blogcentral.  Það var alveg handónýtt, gat ekki einu sinni sett inn nýja færslu og myndavesenið var orðið hálf þreytt.  En nú eru breyttir tímar, hér þarf ekkert að minnka myndirnar og eitthvað vesen, nú setur maður þetta bara inn og það kemur eins og það á að vera..svona meira idiot proof dæmiGlottandi

Jæja nóg um það, eitthvað að myndum komnar inn og fleiri á leiðinni..kallinn á fljúgandi siglingu

Marteinn Guđjónsson
Engin athugasemd